Fundur vísindamannaráðs almannavarna 5. september

05.09. 2014 kl. 12:10 – Bárðarbunga

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

 

  •           Um kl. 7 í morgun barst tilkynning um að nýjar gossprungur hefðu opnast sunnan við núverandi sprungu frá fréttamanni RÚV sem flaug yfir svæðið.
  •           Farið var í eftirlitsflug kl. 8:30 með vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands.
  •           Athuganir úr vélinni hafa leitt í ljós að:

o          Tvær gossprungur hafa myndast suður af gosstöðinni í Holuhrauni, í sigdalnum um 2 km frá Dyngjujökli.

o          Mun minni strókar eru frá nýju sprungunum, gufa og gas stígur til suðausturs.

o          Sigketillinn í Dyngjujökli virðist hafa dýpkað.

o          Engar breytingar er að sjá á Bárðarbungu.

  •           Mikið brennisteinstvíildi mælist í kringum gosstöðvarnar eins og í gær.
  •           Mælingar sýna smávægilega aukningu í leiðni í Jökulsá á Fjöllum.
  •           Dálítill órói sást á jarðskjálftamælum upp úr kl. 3 í nótt. Draga fór úr honum um 6 leytið í morgun.
  •           Töluverð virkni er í nyrðri gossprungunni (sprunga 1)  og er hæðin á  gufustróknum ca. 15.000 fet
  •           Ekkert bendir til þess að gosið í Holuhrauni sé í rénun. Hraunið úr sprungu 1 rennur enn aðallega til  ANA og hefur lengst síðan í gær.
  •           Skjálftavirkni á svæðinu er svipuð og í gær. Um 170 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Tveir jarðskjálftar 4,4 og 5,3 mældust við Bárðarbunguöskjuna um miðnætti.
  •           Enn hefur hægst á jarðskorpuhreyfingum, mældum með GPS, og eru þær nú innan óvissumarka.
  •           Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:

o          Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.

o          Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.

o          Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.

o          Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að        útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.

            Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands: Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

Nyr_stadur_Holuhraun_RUV_1_201409056