CATEGORY Fundir

Íbúafundur á Austurlandi

Í kvöld og á morgun verða tveir íbúafundir á Austurlandi um jarðhræringarnar í Bárðarbungu og eldgosið í Holuhrauni. Fulltrúar frá Jarðvísindastofnun, Sóttvarnalækni, Veðurstofunni, Umhverfisstofnun og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra munu fjalla um málefni tengd gosinu, þróun jarðhræringanna í Bárðarbungu, áhrif gasmengunarinnar frá Holuhrauni, viðbrögð og fleira tengt, jafnframt því að svara fyrirspurnum fundargesta. Fyrri fundurinn verður klukkan…

Íbúafundur í Skjólbrekku í kvöld

Íbúafundur verður haldinn í kvöld klukkan 20:00 í Skjólbrekku, Mývatnssveit. Efni fundarins tengist eldsumbrotunum í Holuhrauni, áhættuþáttum og viðbúnaði. Fulltrúar almannavarna, Umhverfisstofnunar, Jarðvísindastofnunar, Veðurstofunnar og viðbragðsaðila og fleiri verða á fundinum og flytja framsögu og munu svara fyrirspurnum fundarmanna. Íbúar eru hvattir til að mæta.