16.-19. mars, rúmum tveimur vikum eftir að eldgosinu í Holuhrauni lauk fór Svarmi ehf ásamt Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands að Holuhrauni. Tilgangurinn var að kortleggja hluta hraunsins með ómönnuðum loftförum. Afraksturinn er m.a. loftmyndir í hárri upplausn, þrívíddarlíkön og hæðarmódel. Vinnsla fer nú fram á gögnunum og er markmið verkefnis að hægt verði að mæla rúmmál…
Á meðan á gosinu í Holuhrauni stóð var oft á tíðum veruleg gasmengun frá gosinu sem hafði áhrif bæði á menn og dýr. Ljóst er að töluvert af mengandi efnum hefur fallið til jarðar á landinu með úrkomu, ýmist í formi rigningar eða snævar. Mengunarefnin geta hæglega safnast fyrir í snjó og losna svo þaðan…
Ríkislögreglustjórinn, lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, lögreglustjórinn á Austurlandi og lögreglustjórinn á Suðurlandi hafa tekið ákvörðun (með tilvísun í 23.gr. í lögum 82/2008 um almannavarnir) um að breyta umfangi aðgangsstýrða svæðisins norðan Vatnajökuls. Ákvörðunin er tekin í samráði við Veðurstofu Íslands, Vatnajökulsþjóðgarð, Umhverfisstofnun og Sóttvarnalækni. Í lok janúar skilaði Veðurstofa Íslands nýju hættumati vegna gasdreifingar frá…
Vísindamannaráð almannavarna kom saman til fundar föstudaginn 30. janúar 2015 og sendi frá sér eftirfarandi yfirlit um þróun umbrotanna í Bárðarbungu og eldgossins í Holuhrauni. Skjalið, með myndum og gröfum, má nálgast í heild sinni hér á síðunni á pdf formi. Enn er öflugt eldgos í Holuhrauni og er talið að hraunrennslið sé nú…
Vísindamenn frá Jarðvísindastofnun HÍ flugu yfir eldstöðvarnar í Holuhrauni á laugardaginn var, 10.01.2015. Með í för var myndatökumaður frá Stöð 2 og hafa myndir hans nú birst í fréttum stöðvarinnar, hér, og í fjölmiðlum út um allan heim. Myndirnar hér fyrir neðan eru úr þeirri ferð. Eldgosið í Holuhrauni hefur nú staðið yfir í 136…
Grein eftir hóp íslenskra og erlendra vísindamanna, sem skýrir á ítarlegan hátt myndun kvikugangs frá Bárðarbungu og út í Holuhraun í aðdraganda gossins þar, birtist í dag í vefútgáfu hins virta vísindatímarits Nature. Eldsumbrotin í Holuhrauni hafa nú staðið yfir á fjórða mánuð og fátt bendir til þess að lát verði á þeim á næstunni.…
Hraunbreiðan í Holuhrauni heldur áfram að stækka jafnt og þétt. Eins og fram hefur komið hefur gengið heldur illa að afla nákvæmra upplýsinga um rúmmál hraunbreiðunnar og helgast það af því hve erfitt er að framkvæma nákvæmar mælingar á glóandi hrauninu. Ekki er mögulegt að ganga með mælitæki yfir hraunbreiðuna og mælingar úr flugvél eru vandasamar…
Vísindamannaráð almannavarna kom saman til fundar í morgun, mánudaginn 8. desember, eins og það gerir reglulega þrisvar í viku. Á fundinum í morgun var farið yfir þær sviðsmyndir sem taldar eru líklegastar um framvindu eldgossins, en eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá ályktaði Vísindamannaráð að líklegast héldi gosið áfram í einhverja mánuði, að…
Á fundi Vísindamannaráðs, í dag miðvikudaginn 3. desember, var farið yfir gögn um þróun atburða í Bárðarbungu og eldgossins í Holuhrauni frá upphafi umbrotanna. Flest fyrirliggjandi gögn sýna að heldur hefur dregið úr bæði sigi Bárðarbungu og gosinu í Holuhrauni. Jarðskjálftavirkni og hraunflæði er þó enn mikið í samanburði við þau eldgos sem orðið hafa…
Eldgosið í Holuhrauni hefur nú staðið í 92 daga, ef talið er frá 31. ágúst er núverandi gos hófst. Reyndar hafði gos hafist, á nákvæmlega sama stað, þann 28. ágúst en það gos dó út á nokkrum klukkutímum. Eldgosið í Holuhrauni er því að verða eitt allra stærsta eldgos síðari tíma og þarf að leita…