Viðvörun – mjög slæm veðurspá fyrir sunnudag og mánudag

Veðurstofan vill vekja athygli á spá um illviðri síðdegis á sunnudag og fram á mánudag.

Spár gera ráð fyrir að hraðfara og dýpkandi lægð nálgist landið sunnan úr höfum á sunnudag með vaxandi suðaustanátt, meðalvindhraði víða á bilinu 18-25 m/s síðdegis. Suðaustanáttinni fylgir rigning eða slydda og er útlit fyrir talsverða úrkomu S- og V-lands. Það er útlit fyrir þíðu á láglendi, en líkur eru á að það verði slydda eða snjókoma á heiðum og fjöllum.

Á sunnudagskvöldið verður lægðin á norðurleið skammt vestan við landið og sunnan við hana er mikill vindstrengur. Á sunnudagskvöldið og aðfaranótt mánudags mun þessi strengur herja á landið. Má búast við vestan og suðvestan 20-30 m/s á suður helmingi landsins um kvöldið, en norðantil aðfaranótt mánudags. Með vestanáttinni kólnar og færir úrkoman sig yfir í að vera á formi snjóélja. Það er semsagt búist við að meðalvindhraði geti farið yfir 28 m/s sem kallast ofsaveður skv. vindstigakvarða Beufort sem lengi var við lýði. Búast má við hættulegum vindhviðum og að þær geti náð yfir 50 m/s við fjöll, þá einkum norðan og austan þeirra.

Á mánudagsmorguninn er gert ráð fyrir suðvestan stormi (18-25 m/s), en allhvass eða hvass vindur síðdegis (13-20 m/s). Útlit er fyrir éljagang, en að létti til norðaustan- og austanlands. Þá kólnar í veðri, hiti um og undir frostmarki þegar kemur fram á daginn.

Af ofansögðu er ljóst að spáð er vonskuveðri síðdegis á sunnudaginn og fram á mánudag og mjög slæmt ferðaveður.

Þessi tilkynning er unnin með aðstoð tölvuspáa með greiningartíma kl. 00 á föstudag. Veðurspár verða að jafnaði áreiðanlegri eftir því sem þær eru styttra fram í tímann. Þegar ný gögn berast eru spár uppfærðar og má sjá þær m.a. á vef Veðurstofunnar. Taka skal fram að þegar mismunur er á textaspám og sjálfvirkum spám (staðaspár, veðurþáttaspár) þá gildir textaspáin.

Eftir tiltölulega rólegan og mildan nóvembermánuð er nú veður á Íslandi að skipta um gír og benda spár til að veður verði órólegt út næstu viku.

Veðurstofunni, fösdaginn. 28. nóvember 2014 kl. 12:00

vedurstofa_islands_4c