Eldgosinu í Holuhrauni er lokið
Vísindamannaráð almannavarna kom saman til fundar nú í morgun, laugardaginn 28. febrúar 2015, og sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
- Eldgosinu í Holuhrauni, sem hófst þann 31. ágúst 2014, er lokið.
- Nauðsynlegt er að fylgjast áfram mjög vel með Bárðarbungu.
- Áfram mælist gasmengun frá gosstöðvunum og hraunbreiðunni í Holuhrauni.
- Á þessu stigi hefur ekki verið tekin ákvörðun um að breyta aðgangsstýrða svæðinu norðan Vatnajökuls.
- Almannavarnir vinna áfram á hættustigi.
- Litarkóði fyrir flug hefur verið lækkaður úr appelsínugulum niður í gulan.
Næsti fundur Vísindamannaráðs verður þriðjudaginn 3. mars, 2015.