Fréttatilkynning frá Neyðarlínunni

Almannavarnir vilja vekja athygli á fréttatilkynningu frá Neyðarlínunni vegna álags á símanúmerið 112 nú um helgina:

Fréttatilkynning frá Neyðarlínunni

Neyðarlínan hefur sl. sólarhring farið yfir gögn úr síma- og tölvukerfum sínum og jafnframt átt fundi með fjarskiptafélögum til að greina ástæður þess að á tímabilinu frá kl. 8.45 til 9.58 sl. laugardag voru mörg dæmi þess að símsvari segði „þetta númer er ekki til“ þetta voru röng skilboð úr kerfum símafélagana en um var að ræða að allar tengingar voru yfirfullar vegna álags. Félögin vinna nú í sameiningu að því að greina orsakir þessa og að tryggja að þetta ástand endurtaki sig ekki. 

Við yfirferð gagna Neyðarlínunnar hefur ekkert komið fram sem bendir til bilunar í búnaði 112 þjónustunnar.

Í óveðrinu varð álag á neyðarsímþjónustuna 112 meira en áður hefur gerst. 1400 símtöl voru afgreidd frá 08:00 til 12:00 s.l. laugardag. Þegar mest gekk á reyndu yfir 500 aðilar að hringja á sama tíma. Skýringin er að hluta til hin röngu skilaboð sem kölluðu á endurteknar hringingar.  

Niðurstöður yfirferðarinnar gefa hins vegar tilefni til að endurmeta viðbúnað 112; afkastagetu tenginga við símafélögin, mögulega forgangsröðun eftir eðli erinda og sérstaka viðbragðsáætlun ef aðstæður sem þessar skapast aftur. Á sama tíma þurfa viðbragðsaðilar að taka þátt í að skerpa verklag við greiningu og úrvinnslu erinda.

Þá verður viðbragðskeðjan álagsprófuð oftar en hingað til í samstarfi símafyrirtækja, Neyðarlínu og viðbragðsaðila.  

112

Þessi reynsla er dýrmæt og verður nýtt til að efla viðbragðskerfið öllum til hagsbóta.