Háir SO2 mengunartoppar mældust í nótt og í morgun við Mývatn

UST-www.loftgaedi.isMjög háir mengunartoppar hafa verið að mælast í nótt og í morgun við Mývatn en einnig hefur mengun verið að mælast á Húsavík.Veðurstofan bendir á að í dag (miðvikudag) er spáð sunnanátt og dreifist þá gasmengunin frá eldgosinu til norðurs og markast áhrifasvæðið af Bárðardal í vestri og Hólasandi í austri. Suðvestlægari vindur í kvöld og færist þá svæðið heldur til austur allt austur að Þistilfirði.Fólk á svæðinu er beðið um að fylgjast vel með mælum Umhverfisstofnunar á www.loftgaedi.is
Verði fólk vart við mikla mengun er það beðið að halda sig innandyra og forðast óþarfa útiveru. Til að minnka enn áhrif mengunar innandyra er ráðlagt að loka gluggum og hækka á ofnum þegar mengunin gengur yfir.
Sjá frekari upplýsingar undir valmyndinni ▲Mengun/Loftgæði▼