Í flugi vísindamanna HÍ og VÍ yfir Vatnajökul í kvöld greindust röð sigkatla, 10-15 m djúpra, sem mynda 4-6 km línu suður af Bárðarbungu. Katlarnir hafa myndast af völdum mikillar bráðnunar, mögulega eldgoss, óvíst hvenær. Hefðbundinn gosórói hefur ekki greinst á jarðskjálftamælum sem stendur. Verið er að fara yfir þessi gögn. Skrifað af vakthafandi jarðvísindamanni…
Sigdældir suðaustan við Bárðarbungu.Vísindamenn hafa orðið varir við breytingar í norðvestanverðum Vatnajökli. Farið var í vísindamannaflug með TF-SIF yfir jökulinn í dag. Markmiðið með ferðinni var að greina frekar svæðið þar sem jarðskjálftahrinan hefur verið undanfarna daga. Í fluginu sáust grunnir sigkatlar og sprungur 4 – 6 km langar við suðaustanverða Bárðarbungu. Þarna er um…
Hér má sjá þrjár myndir sem Víðir Reynisson deildarstjóri almannavarna tók. Fyrri tvær myndirnar eru teknar uppi á Vatnajökli þegar unnið var að uppsetningu jarðskjálftamæla á jöklinum í kjölfar aukinnar skjálftavirkni í Bárðarbungu. Síðasta myndin er tekin við Hrossaborgir þegar ríkislögreglustjóri, Haraldur Jóhannessen, var þar á ferð í tengslum við lokanir á svæðinu norðan Vatnajökuls.…
Aðgerðastjórn á Húsavík hefur ákveðið að opna Hólsfjallaveg (864) austan Jökulsárgljúfurs frá þjóðvegi 1 að vegi 85. Einnig hefur vegurinn inn í Ásbyrgi verið opnaður, þar sem áður var lokað. Dettifossvegur vestan Jökulárgljúfurs (862) er enn lokaður. Hér fyrir neðan má sjá kort Vegagerðarinnar af svæðinu sem hefur verið lokað. Rétt er að taka fram að lokanir byggjast…
Ríkislögreglustjóri hefur að höfðu samráði við lögreglstjórana á Húsavík og Seyðisfirði ákveðið að lækka almannavarnastig vegna jarðskjálftavirkni kringum Bárðarbungu úr neyðarstigi í hættustig. Lokanir í Jökulsárgljúfrum að Dettifossi eru enn í gildi sem og lokanir á hálendinu norðan Vatnajökuls. Ákvörðunin er byggð á mati vísindamanna á stöðunni eins og hún er núna, en athuganir þeirra hafa…