Slæm loftgæði á Suðvesturlandi

Loftgæði eru nú víða slæm á Suðvesturlandi. Samkvæmt vef Umhverfisstofnunar www.loftgæði.is eru loftgæði „slæm fyrir viðkvæma“. Brennisteinsdíoxíð mælist á bilinu 700-1600 µg/m³ á svæðinu frá Hveragerði að Grundartanga. Verst mælast loftgæðin í Grafarvogi í Reykjavík.

Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er búist við froststillu á gosstöðunum í Holuhrauni en við þær aðstæður má búast við að háum styrk mengunar. Einkum suðvestantil fyrripart dags. Þegar kemur fram á daginn má búast við mengun á svæðunum norðan og austan við eldstöðina.

Almenningur er hvattur til þess að kynna sér leiðbeiningar yfirvalda sem finna má á vef Umhverfisstofnunar www.loftgæðil.is og á vef almannavarna www.avd.is

Holuhraun_MOGT_201401027