Fundir vegna jarðskjálftahrinunnar við Bárðarbungu og fréttir úr eftirlitsflugi TF-SIF

Í kvöld klukkan 20:00  er fyrirhugaður íbúafundur í Ljósvetningabúð með lögreglustjóranum á Húsavík,  fulltrúum almannavarna, Veðurstofunnar og öðrum hagsmunaaðilum. Farið verður yfir málefni er varða jarðskjálftahrinuna við Bárðarbungu, viðbúnað og viðbrögð og fyrirspurnum íbúa um málið svarað. Í morgun var daglegur stöðufundur með viðbragðs- og hagsmunaaðilum í húsnæði björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík.

Þá var fundur í vísindamannaráði almannavarna en þar sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og var farið yfir helstu niðurstöður flugs vísindamanna yfir Vatnajökul í gær og í morgun. Niðurstaða fundarins var að ekki hafi orðið vart við breytingar frá því að sprungur og sigdældir sáust í jöklinum í suðaustanverðri  Bárðarbungu í gærkvöldi. Talið er að þær hafi myndast vegna bráðnunar við botn. Dældirnar hafa verið staðsettar suðaustur af Bárðarbunguöskjunni líklega innan vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum.

Sprungumyndanirnar eru þrjár og hringlaga, samanlagt um 5 km að lengd. Um er að ræða svæði þar sem jökullinn er um 400-600 m að þykkt. Búið er að kanna vatnsstöðu Grímsvatna sem talin er að hafi hækkað um 5-10 m á síðustu dögum, sem samsvarar því að 10-30 milljón m3 af vatni hafi bæst í vötnin. Örlítil aukning í leiðni í Köldukvísl mældist í morgun og orsök er óþekkt. Engin breyting hefur mælst í Hágöngulóni og engin breyting í Jökulsá eða Skjálfandafljóti. Talið er að vatn frá sigdældinni hafi runnið í Grímsvötn eða til Jökulsár á Fjöllum. Skjálftavirkni er svipuð og undanfarna daga.

Um miðnættið voru þrír skjálftar u.þ.b 4 að stærð og einn 5 að stærð kl. 08:13 í morgun, allir í Bárðarbungu. Skömmu fyrir kl. 08 í morgun jókst skjálftavirkni lítillega í Öskju. Talið er að spennubreytingar vegna gliðnunar af völdum berggangsins hafi áhrif á Öskusvæðinu. Berggangurinn undir Dyngjujökli hefur lengst 1-1,5 km til norðurs síðan í gær, sem er töluvert minna en undanfarna daga. Hann er nú kominn inn í sprungusvæði Öskju og GPS-mælingar benda til þess að verulegra áhrifa gæti þar.

TF-SIF_visindamenn_280814

Vísindamenn á leið í flug með TF-SIF