Frekari lokanir vegna nýrrar gossprungu

5. September kl. 8.30

Nú í morgunsárið sáu fréttamenn RUV, sem voru á flugi yfir gosstöðvunum, að opnast hefur ný gossprunga sunnan við gömlu gossprunguna sem teygir sig í áttina að Dyngjujökli. Flugvél á vegum almannavarna er að leggja upp frá Reykjavíkurflugvelli með jarðvísindamenn og fulltrúa almannavarna.

Lögreglustjórinn á Húsavík hefur ákveðið í ljósi þessara upplýsinga að loka fyrir alla frekari umferð inn á svæðið norðan Vatnajökuls. Fjölmiðlar og vísindamenn hafa til þessa haft takmarkaðan aðgang að svæðinu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Á meðan þessi óvissa varir er ekki talið rétt að hleypa fleirum inn á svæðið. Jafnframt hefur verið sett upp innri lokun á vegi 910 við Vaðöldu.

Þessi ákvörðun verður endurskoðuð um leið og nýjar upplýsingar berast.

Lögreglustjórinn á Húsavík

Í samráði við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

avdlogo09-150x151