Fundur vísindamannaráðs almannavarna 5. september
05.09. 2014 kl. 12:10 – Bárðarbunga
Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra
Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:
- Um kl. 7 í morgun barst tilkynning um að nýjar gossprungur hefðu opnast sunnan við núverandi sprungu frá fréttamanni RÚV sem flaug yfir svæðið.
- Farið var í eftirlitsflug kl. 8:30 með vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Háskóla Íslands.
- Athuganir úr vélinni hafa leitt í ljós að:
o Tvær gossprungur hafa myndast suður af gosstöðinni í Holuhrauni, í sigdalnum um 2 km frá Dyngjujökli.
o Mun minni strókar eru frá nýju sprungunum, gufa og gas stígur til suðausturs.
o Sigketillinn í Dyngjujökli virðist hafa dýpkað.
o Engar breytingar er að sjá á Bárðarbungu.
- Mikið brennisteinstvíildi mælist í kringum gosstöðvarnar eins og í gær.
- Mælingar sýna smávægilega aukningu í leiðni í Jökulsá á Fjöllum.
- Dálítill órói sást á jarðskjálftamælum upp úr kl. 3 í nótt. Draga fór úr honum um 6 leytið í morgun.
- Töluverð virkni er í nyrðri gossprungunni (sprunga 1) og er hæðin á gufustróknum ca. 15.000 fet
- Ekkert bendir til þess að gosið í Holuhrauni sé í rénun. Hraunið úr sprungu 1 rennur enn aðallega til ANA og hefur lengst síðan í gær.
- Skjálftavirkni á svæðinu er svipuð og í gær. Um 170 skjálftar hafa mælst frá miðnætti. Tveir jarðskjálftar 4,4 og 5,3 mældust við Bárðarbunguöskjuna um miðnætti.
- Enn hefur hægst á jarðskorpuhreyfingum, mældum með GPS, og eru þær nú innan óvissumarka.
- Fjórir möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:
o Að innflæði kviku stöðvist og skjálftahrinan fjari út og ekki komi til annars eldgoss.
o Gangurinn nái til yfirborðs á fleiri stöðum utan jökuls. Ekki er hægt að útiloka gos með hraunflæði og/eða sprengivirkni.
o Gangurinn nái til yfirborðs undir jökli. Gosið myndi leiða til jökulhlaups í Jökulsá á Fjöllum og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli.
o Gos í Bárðarbungu. Gosið gæti leitt til jökulhlaups og e.t.v. einnig sprengigoss með öskufalli. Mestar líkur eru á að hlaup kæmi niður Jökulsá á Fjöllum, en ekki er hægt að útiloka aðrar hlaupaleiðir: Skjálfandafljót, Kaldakvísl, Skaftárkatla og Grímsvötn.
Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.
Frá Veðurstofu Íslands: Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.