Eftirlit með lokaða svæðinu norðan Vatnajökuls

Almannavarnir vilja ítreka að öll umferð um lokaða svæðið norðan Vatnajökuls við gosstöðvarnar er bönnuð. Lögreglan hefur eftirlit með lokaða svæðinu meðal annars í samvinnu við Landhelgisgæsluna. Við reglubundið eftirlit í dag sáust bílar innan bannsvæðisins og verða allir þeir sem í bílunum voru, bílstjórar og farþegar, kærðir fyrir brot á lögreglulögum og mega þeir búast við háum fjársektum.

Lokanir hafa verið í gildi norðan Vatnajökuls frá 18. ágúst. Ástæðan fyrir þessari lokun eru hættur sem geta fylgt eldgosinu og þeirri atburðarrás sem er í gangi. Hætturnar geta meðal annars verið vatnsflóð, eitraðar gastegundir, hraunrennsli, og steinkast.

Vísindamenn, lögregla og fjölmiðlar eru þeir einu sem hafa fengið takmarkað leyfi almannavarna til þess að vera inni á hættusvæðinu, háð sérstökum skilmálum frá almannavörnum en vegna aukinnar eldvirkni yfirgáfu allir svæðið í morgun.

Ákvörðunin um lokun svæðisins verður endurmetin í fyrramálið.

Sigketill í Dyngjujökli. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Sigketill í Dyngjujökli. Mynd almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.