Fundur vísindamannaráðs almannavarna 10. september 2014

Fundi vísindamannaráðs Almannavarna sitja vísindamenn frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskólans ásamt fulltrúum frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra. Fundinn sátu jafnframt Sóttvarnarlæknir og fulltrúi Umhverfisstofnunar

Á fundi vísindamannaráðs í morgun kom eftirfarandi fram:

Ekkert dregur úr gosinu í Holuhrauni. Samkvæmt athugunum á vettvangi er gosvirkni svipuð og undanfarna daga. Hraun rennur áfram til austurs af svipuðum krafti og áður. Nú rennur hraunið í farveg Jökulsár á Fjöllum. Áin flæmist til austurs undan hrauninu. Ekki er sprengivirkni þar sem hraunið rennur í ána en gufubólstrar stíga til himins.

Loftgæði í byggð:

o   Upplýsingar um loftgæði í Reykjahlíð, á Egilsstöðum og á Reyðarfirði eru nú aðgegnilegar á vefsíðunni loftgæði.is. Dreifingarspá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir að seinnipartinn í dag geti styrkur mælst á bilinu 30-40µg/m3 á geira sem gæti náð yfir Vopnafjörð, Egilsstaði og Reyðarfjörð. Sá styrkur gefur ekki tilefni til neinna sérstakra ráðstafana. Tilmæli frá Sóttvarnalækni og Umhverfisstofnun má finna á heimasíðum stofnananna.

Loftgæði á gossvæðinu:

o   Mikið gasstreymi er í og í kringum eldstöðina. Bráð lífshætta stafar af gasinu og ekki er óhætt að nálgast svæðið án gasmæla og gasgríma. Við gosstöðvarnar má búast við sífelldum staðbundnum breytingum á vindátt, vegna hitauppstreymis, sem gera aðstæður þar mjög hættulegar.

Um 80 skjálftar hafa mælst frá miðnætti, þeir stærstu í norðurhluta Báðrarbunguöskjunnar, 5,5 og, 4,9 að stærð. Órói virðist vera svipaður og undanfarna daga.

GPS mælingar sýna óverulegar jarðskorpuhreyfingar þannig að kvikustreymi inn í ganginn virðist haldast svipað og útstreymi í gosinu í Holuhrauni.

Þrír möguleikar eru taldir líklegastir um framvindu:

o   Öskjusig í Bárðarbungu hættir áður en það verður mikið og gosið í Holuhrauni fjarar út.

o   Stórt öskjusig í Bárðarbungu. Gos í Holuhrauni verður langvinnt eða vex. Mögulegt að sprungan lengist til suðurs inn undir Dyngjujökul og valdi jökulhlaupum og gjóskufalli. Einnig er mögulegt að sprungur opnist annar staðar undir jöklinum.

o   Stórt öskjusig í Bárðarbungu og gos í öskjubroti. Slíkt gos gæti brætt mikinn ís og valdið verulegu jökulhlaupi.

Ekki er hægt að útiloka aðrar sviðsmyndir.

Frá Veðurstofu Íslands:

Litakóði fyrir flug er appelsínugulur fyrir Bárðarbungu og gulur fyrir Öskju.

avdlogo09-150x151