Leiðbeiningar fyrir leik- og grunnskóla
Almannavarnir, Umhverfisstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Sóttvarnalæknir hafa fengið
nokkuð af fyrirspurnum frá leik- og grunnskólum um hvar upplýsingar megi finna varðandi
gosmengunina. Almannavarnir gefa út tilkynningar þegar háir mengunartoppar ganga yfir og
nauðsynlegt er að fólk haldi sig inni og loki gluggum. Athugið að mengunartoppar ganga jafnan hratt
fyrir. Það breytir ekki því að gosmengun getur legið í loftinu í lægri styrk og við höfum því hvatt fólk
til að treysta á eigin skynfæri og skynsemi. Ef fullorðnir finna fyrir einkennum og óþægindum og líður
betur inni gildir það sama um börnin. Engin ástæða er til að ætla að SO2 mengun sé hættilegri börnum
en fullorðnum, að mati Sóttvarnalæknis.
Á heimasíðum Umhverfisstofnunar og embættis Landlæknis er sérstakur borði merktur
gosmenguninni og þar má nálgast allar almennar upplýsingar. Þar er til dæmis gagnlegt að skoða
töfluna sem sýnir rétt viðbrögð við SO2 mengun. Hún útlistar viðbrögð eftir styrk mengunar og eftir
því hvort um heilbrigt fólk sé að ræða eða fólk sem er viðkvæmt.
SO2 taflan er aðgengileg hér:
http://www.ust.is/einstaklingar/loftgaedi/so2/
Daglegar spár um dreifingu mengunarinnar og loftgæðin má nálgast á vef Veðurstofunnar á slóðinni
http://www.vedur.is/vedur/spar/textaspar/oskufok/ og styrkur mengunarinnar er mældur og miðlað
á vefsíðunni http://www.ust.is/einstaklingar/loftgaedi/maelingar. Þar má sjá punkta og þegar smellt er á þá má sjá mælingu mengunarinnar
á þessum stöðum. Ekki eru allir mælar á landinu nettengdir með þessum hætti en virkni þeirra tryggir
að viðvaranir eru gefnar út þegar mengunartoppar ganga yfir. Fjölmiðlar gegna veigumiklu hlutverki
við miðlum upplýsinga til almennings og því er nauðsynlegt að fylgjast grannt með þeim og fylgja
leiðbeiningum almannavarna sem þar koma fram.
Sjá einnig ýmsar upplýsingar hér: Mengun/Loftgæði