TAG Loftgæði

Gasmengun í Skagafirði og Stykkishólmi

Aukin brennisteinsdíoxíð (SO2) mengun mælist nú í Skagafirði.  Hæðstu gildi sem mældust í morgun á Sauðárkróki voru 1.7 ppm sem er um 5100 míkrógrömm á rúmmetra. Einnig hefur mælst aukinn styrkur í Stykkishólmi en þar hefur mælst 0.9 ppm en það eru um 2700 míkrógrömm á rúmmetra. Íbúar á svæðinu eru hvattir til þess að…

Brennisteinsmengun á höfuðborgarsvæðinu og í Hveragerði

Mengunarmælar í Hveragerði og á höfðuborgarsvæðinu sýna nú hækkun á styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2).  Hæsta gildi í Hveragerði hefur farið yfir 1400 µg/m3 og mælir í Hvaleyrarholti hefur farið yfir 1500 µg/m3. Hæg austanátt er núna á þessu svæði og eykur það líkurnar á því að styrkur brennisteinsdíoxíðs eigi eftir að hækka. Fólk með undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma…

Gasmengun á suðausturlandi

Mengunarmælar sýnda að styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) er 1.800 míkrógrömm á rúmmetra á Höfn í Hornafirði og í Skaftafelli. Búast má við því að svipuð eða hærri gildi séu á svæðinu þar á milli. Hæsta gildi SO2 sem mælst hefur síðan í morgun er 2.200 míkrógrömm á rúmmetra í Suðursveit og á Mýrum. Fólk með undirliggjandi…

Aukin brennisteinsmengun mælist á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni

Aukin brennisteinsdíoxíð (SO2) mengun mælist nú á Kirkjubæjarklaustri og nágrenni. Mælar sýna að styrkurinn er á bilinu 1400-3300 míkrógrómm á rúmmetra. Íbúar svæðisins eru hvattir til þess að fylgjast vel með frekari fréttum og kynna sér vel leiðbeiningar yfirvalda sem finna má hér á síðunni. Hlekkurinn er hér. Fólk með undirliggjandi öndunarfæra sjúkdóma er hvatt…

Mikil gasmengun á Höfn í Hornafirði og nærsveitum

Mikil brennisteinsdíoxíð (SO2) mengun mælist nú á Höfn í Hornafirði. Mengunarmælar sýndu að styrkur SO2 væri á bilinu 9.000-21.000 míkrógrömm á rúmmetra. Almannavarnir hafa sent út SMS skilaboð til íbúa Hafnar í Hornafirði. Almannavarnir hvetja íbúa svæðisins til þess að halda til innandyra, fylgjast með fjölmiðlum og fylgja leiðbeiningum Umhverfisstofnunar og Landlæknis sem finna má…

Búast má við gasmengun á norðanverðu landinu í dag

Frá Veðurstofu Íslands: Í dag (fimmtudag) má búast við gasmengun frá eldgosinu víða á norðanverðu landinu, frá Jökuldal vestur á Strandir. Á morgun (föstudag) eru horfur á mengun á svæðunum norður og austur af eldstöðinni, frá Eyjafirði og allt austur að Höfn í Hornafirði. Spánna má sjá á vef Veðurstofu Íslands, en þar má einnig…

Brennisteinsmengun mælist nú á Húsavík

Brennisteinsmengun mælist nú á Húsavík. Mælar sýna að styrkur brennisteinsdíoxíðs (SO2) er nú yfir 2000 míkrógrömm á rúmmetra á Húsavík. Íbúar á svæðinu eru hvattir til þess að kynna sér leiðbeiningar Umhverfisstofnunar og Landlæknis sem finna má á síðu almannavarna: www.avd.is

Gasmengun að mælast á Húsavík og í Mývatnssveit og nágrenni

Gasmengun frá eldgosinu í Holuhrauni er nú að berast til Húsavíkur, Mývatnssveitar og nærsveita. Loftgæðamælar við Mývatn eru að sýna 800 – 1200 µg/m3 eða 0,3 – 0,4 ppm og eru loftgæði því slæm fyrir viðkvæma. Upplýsingar um áhrif SO2 á heilsu og viðbrögð er hægt að nálgast á vefsíðu Umhverfisstofnunar og vefsíðu almannavarna. Í dag (miðvikudag) og á morgun (fimmtudag)…