CATEGORY Holuhraun

Mengun í Landsveit

Styrkur SO2 er nú að mælast um 1000 mikrógrömm á rúmmetra í Landsveit við Leirubakka og nágrenni. Íbúar eru beðnir að fylgjast vel með mælingum á vefsíðu Umhvefisstofnunar www.loftgaedi.is og halda sig innandyra,loka gluggum og hækka í ofnum. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill minna á töflu um möguleg heilsufarsleg áhrif og rétt viðbrögð eftir styrkleika SO2. Hægt er að…

Há gildi SO2 á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði

Almannavörnum hafa borist tilkynningar um há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði. Gildin eru allt að 2400 míkrógrömm á rúmmetra. Allir þeir sem eru á svæðinu, eða eiga leið um svæðið, eru hvattir til þess að kynna sér leiðbeiningar Umhverfisstofnunar og Landlæknis um viðbrögð við mengun frá gosstöðvunum í Holuhrauni. Hér á síðunni…

Há mengunargildi á Breiðdalsvík og nágrenni

Háir mengunartoppar hafa mælst nú um hádegið eða um 1400 – 1700 µg/​m3 á Breiðdalsvík og nágrenni. Einnig má búast við mengun frá eldgosinu í Holuhrauni, á Djúpavogi og Fáskrúðsfirði í dag svo og víðar á Austurlandi. Fólk á svæðinu er beðið um að fylgjast vel með mælum Umhverfisstofnunar á www.loftgaedi.is Verði fólk vart við mikla…

Háir SO2 mengunartoppar mældust í nótt og í morgun við Mývatn

Mjög háir mengunartoppar hafa verið að mælast í nótt og í morgun við Mývatn en einnig hefur mengun verið að mælast á Húsavík.Veðurstofan bendir á að í dag (miðvikudag) er spáð sunnanátt og dreifist þá gasmengunin frá eldgosinu til norðurs og markast áhrifasvæðið af Bárðardal í vestri og Hólasandi í austri. Suðvestlægari vindur í kvöld…

Hitamynd af eldgosinu í Holuhrauni

Eldgosið í Holuhrauni heldur áfram af svipuðum krafti og undanfarna daga og enn er ekkert lát á sigi öskju Bárðarbungu. Rúmmál sigskálarinnar er nú metið 0,6 rúmkílómetrar. Nánar má lesa um niðurstöður fundar Vísindamannaráðs almannavarna, sem haldinn var að Bifröst í Borgarfirði í morgun í tengslum við FutureVolc rannsóknarverkefnið, hér á síðunni. Nánar má lesa…

300 rúmmetrar á sekúndu!

Vísindamenn Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Veðurstofu Íslands hafa með mælingum áætlað stærð eldgossins í Holuhrauni. Frá því gosið hófst hafa reglulega verið birtar upplýsingar um flatarmál hraunbreiðunnar og er hún nú rúmir 37 ferkílómetrar. Þykkt hraunsins er nokkuð misjöfn. Sums staðar hefur það hlaðist upp en á öðrum stöðum runnið hratt yfir og þar er…

Há gildi SO2 mælast í nágrenni Mývatns

Hækkandi gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mælast nú við Mývatn (við Reykjahlíð og Voga). Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill hvetja íbúa til að fylgjast vel með og kynna sér töflu um áhrif SO2 á heilsufar og ráðleggingar um viðbrögð á vefsíðu Umhverfisstofnunar á slóðinni   http://ust.is/einstaklingar/loftgaedi/so2 og styrk brennisteinsdíoxíðs á vefsíðunni www.loftgæði.is.  

Eldgosið í Holuhrauni – myndir

Ekkert lát virðist vera á eldgosinu í Holuhrauni. Hraunbreiðan stækkar enn og samkvæmt nýjustu mælingum er hún nú rúmir 37 ferkílómetrar. Samkvæmt vísindamönnum á vettvangi rennur hraunið nú norðan við hraunjaðarinn til norðausturs. Enn kemur mikið upp af brennisteinsdíoxíði með eldgosinu. Vísindamenn á vettvangi telja að 90% gas efnanna komi upp um gígana en aðeins…

Þétting mælineta um allt land

Á allra næstu dögum mun Umhverfisstofnun í samstarfi við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra auka vöktun á styrk brennisteinsdíoxíðs (SO2) frá eldgosinu í Holuhrauni. Keyptir hafa verið 40 mælar og verður mælingin í höndum þeirra sem starfa að almannavörnum á hverjum stað s.s. lögreglu. Við kaup á mælunum var lögð höfuðáhersla á að kaupa mæla sem auðveldlega mætti…