Leiðbeiningar fyrir leik- og grunnskóla

Almannavarnir, Umhverfisstofnun, Samband íslenskra sveitarfélaga og Sóttvarnalæknir hafa fengið nokkuð af fyrirspurnum frá leik- og grunnskólum um hvar upplýsingar megi finna varðandi gosmengunina. Almannavarnir gefa út tilkynningar þegar háir mengunartoppar ganga yfir og nauðsynlegt er að fólk haldi sig inni og loki gluggum. Athugið að mengunartoppar ganga jafnan hratt fyrir. Það breytir ekki því að…

Hækkandi mengunargildi á Ísafirði

Nú í kvöld hefur styrkur SO2 farið hækkandi á Ísafirði. Ekki er nettengdur mælir á Ísafirði en færanlegur mælir á staðnum sýnir að mengun er talsverð. Íbúar eru því hvattir til að kynna sér leiðbeiningar á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Landlæknisembættisins um áhrif loftgæða á heilsufar og ráðleggingar um viðbrögð við SO2 frá eldgosinu. Til að…

Íbúafundur í Skjólbrekku í kvöld

Íbúafundur verður haldinn í kvöld klukkan 20:00 í Skjólbrekku, Mývatnssveit. Efni fundarins tengist eldsumbrotunum í Holuhrauni, áhættuþáttum og viðbúnaði. Fulltrúar almannavarna, Umhverfisstofnunar, Jarðvísindastofnunar, Veðurstofunnar og viðbragðsaðila og fleiri verða á fundinum og flytja framsögu og munu svara fyrirspurnum fundarmanna. Íbúar eru hvattir til að mæta.

Búist við mengun frá gosinu um allt vestanvert landið í dag

Eftirfarandi spá má lesa á vef Veðurstofu Íslands: Á mánudag og þriðjudag var vindur mjög hægur á landinu og varð vart við við gasmengun frá eldgosinu í flestum landshlutum. Í hægviðrinu er mögulegt að gasið safnist saman, þá einkum nærri eldstöðinni og nái háum styrk. Í dag (miðvikudag) er útlit fyrir hægt vaxandi austanátt. Það…

Mengun í Landsveit

Styrkur SO2 er nú að mælast um 1000 mikrógrömm á rúmmetra í Landsveit við Leirubakka og nágrenni. Íbúar eru beðnir að fylgjast vel með mælingum á vefsíðu Umhvefisstofnunar www.loftgaedi.is og halda sig innandyra,loka gluggum og hækka í ofnum. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vill minna á töflu um möguleg heilsufarsleg áhrif og rétt viðbrögð eftir styrkleika SO2. Hægt er að…

Aukin SO2 mengun á nokkrum stöðum á Norðaustur- og Suðausturlandi

Nú í morgun hefur styrkur SO2 farið hækkandi á nokkrum stöðum á Norðaustur-og Suðausturlandi. Í Jökuldal, Borgarfirði eystri og Skaftafelli eru mælar, sem ekki eru nettengdir og hafa borist upplýsingar um hækkandi mengunargildi frá þessum stöðum í morgun. Sérstaklega hár toppur var mældur í Jökuldalnum upp úr hádeginu og voru send SMS viðvörunarboð í farsíma á það svæði. Íbúar eru hvattir til að…

Mikil móða leggur nú yfir suðvesturland

Upplýsingar hafa borist almannavörnum að töluverða móðu leggi nú yfir suðurland og Reykjanes. Samkvæmt sjálfvirkum mæli í Þjórsárdal fer gildi brennisteinsdíoxíðs hækkandi á því svæði og stendur mælirinn nú í 1500 míkrógrömmum á hvern rúmmetra lofts. Eins má sjá á nýlegri loftmynd frá Veðurstofu Íslands hvernig móðan frá gosstöðvunum dreifir úr sér til suðvesturs. Almenningur…

Brennisteinsdíoxíð (SO2) mengun frá eldgosinu í Holuhrauni

Brennisteinsdíoxíð (SO2) mengun frá eldgosinu í Holuhrauni mældist á höfuðborgarsvæðinu í gær og mun samkvæmt spá Veðurstofu Íslands verður greinanleg á Suður- og Vesturlandi næstu daga. Almannavarnir vilja hvetja almenning til þess að kynna sér upplýsingar um loftgæði á síðunni www.loftgaedi.is og á heimasíðu Umhverfisstofnunar www.ust.is Einnig má finna upplýsingar á síðu almannavarna www.avd.is Rétt…

Há gildi SO2 á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði

Almannavörnum hafa borist tilkynningar um há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Fáskrúðsfirði. Gildin eru allt að 2400 míkrógrömm á rúmmetra. Allir þeir sem eru á svæðinu, eða eiga leið um svæðið, eru hvattir til þess að kynna sér leiðbeiningar Umhverfisstofnunar og Landlæknis um viðbrögð við mengun frá gosstöðvunum í Holuhrauni. Hér á síðunni…